Eyþór Ingi Gunnlaugsson

Eyþór Ingi Gunnlaugsson

Eyþór Ingi Gunnlaugsson er fæddur 29. maí 1989. Hann er einn kraftmesti og fjölhæfasti söngvari sinnar kynslóðar. Hann vakti fyrst þjóðarathygli ungur að árum og sigur hans í Bandinu hans Bubba árið 2008 markaði upphafið að ferli sem hefur farið um ótrúlega víðan völl. Hann hefur sungið með Todmobile, staðið á leikhússviðinu, tekið rokkið föstum tökum og árið 2013 steig hann á Eurovision-sviðið í Malmö fyrir Íslands hönd með „Ég á líf". En Eyþór er ekki aðeins söngvari. Hann er ein allra besta eftirherma sem Ísland hefur alið. Söngröddin getur verið hrá og óbeisluð aðra stundina og brothætt og einlæg þá næstu. Hann getur með öðrum orðum bæði hvíslað – og sprengt þakið af húsinu.