Um Vitringana þrjá
Vinirnir og söngstjörnurnar Friðrik Ómar, Eyþór Ingi og Jógvan Hansen snéru bökum saman árið 2024 og hófu innreið á jólamarkaðinn undir nafninu Vitringarnir 3. Skemmst er frá því að segja að samstarf þeirra hafi slegið í gegn en tugþúsundir gesta hafa borið þá augum í Hörpu og Hofi. Hvort sem þú kemur með fjölskyldunni, vinnuhópnum eða vinunum þá er þetta rétta leiðin til að komast í jólaskap. Grín, grúv og gæsahúð — allt á einu kvöldi.
Við hvetjum þig til að skrá þig á póstlista Vitringanna á forsíðunni á www.vitringarnir3.is og þá tryggir þú þér forskot á forsöluna sem hefst 28. ágúst kl. 11:00. Vitringarnir munu koma fram ásamt hljómsveit og gestum í Hörpu og Hofi á aðventunni.
