← Slúðrið

Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin!

Vitringarnir þrír, Friðrik Ómar, Jógvan Hansen og Eyþór Ingi, hafa nú opnað eigin vefverslun þar sem finna má fjölbreyttan og skemmtilegan varning tengdan þremenningunum og vinsælum jólasýningum þeirra.

„Okkur langaði að skapa eitthvað skemmtilegt sem fólk gæti tekið með sér heim úr ævintýrinu okkar. Þetta er auðvitað allt gert með hæfilegum skammti af húmor og jólagleði,“ segir Friðrik Ómar.

Meðal þess sem er í boði er Aðventusvuntan, jóladagatal með 24 vösum fyrir litlar gjafir og óvænta glaðninga sem nota má ár eftir ár. Einnig er komin út sérstök vínylplata Vitringanna þriggja með völdum upptökum frá jólatónleikum þeirra árin 2024 og 2025.

„Þetta er algjör stemningsplata sem fangar gleðina á tónleikunum okkar. Fullkomin á fóninn á meðan fólk undirbýr jólin,“ segir Eyþór Ingi.

Vefverslunin er skemmtileg viðbót við ævintýraheim Vitringanna þriggja og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi – eða að minnsta kosti eitthvað til að hlæja að!

Vefverslunin er nú opin á www.vitringarnir3/verslun

Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 1Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 2Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 3Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 4Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 5Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 6Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 7Betlihem - vefverslun Vitringanna er opin! — mynd 8

Viltu fá að vita allt fyrst?
Skráðu þig á póstlistann okkar