Uppselt á 11 sýningar! Nýjar aukasýningar komnar í sölu í Hörpu!
„Það er óhætt að segja að viðtökurnar við Vitringunum þremur hafi farið fram úr okkar björtustu vonum. Nú þegar er uppselt á 11 sýningar og því höfum við ákveðið að bæta við fjórum aukasýningum í Hörpu. Miðasala á aukasýningarnar er hafin. Við vissum að við værum spenntir fyrir aðventunni. Við vissum líka að mömmur okkar myndu mæta. En 11 uppseldar sýningar áður en við erum einu sinni farnir að leita að sparifötunum var kannski aðeins meira en við þorðum að vona. Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklátir fyrir þessar frábæru viðtökur."
Vitringarnir 3 eru Friðrik Ómar, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Jógvan Hansen, þrír ólíkir menn sem eru alls ekki alltaf sammála – og það veit enn enginn með fullri vissu hver þeirra ræður. Á sviðinu verður hljómsveit hússins undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og ýmislegt annað mun gerast sem við ætlum alls ekki að segja frá því strax.
er miðasalan hafin hér: https://www.harpa.is/vidburdir/21580
Miðað við viðtökurnar hingað til er sennilega skynsamlegra að tryggja sér miða strax.
Við sjáumst á aðventunni!

